Í meðallagi gisting. Við mættum kl. 14.30, innritun hefst kl. 16.00 Okkur var boðið að greiða 4.000 kr. fyrir snemm innritun. Höfðum ekki áhuga á því, en fannst í alla staði heldur gróft að leggja auka gjald á snemm innritun ef herbergið er tilbúið hvort eð er. Starfsmaður í afgreiðslu virtist upptekinn og hafa lítinn áhuga á að láta gesti trufla sig. Þjónustulundin mjög takmörkuð. Herbergið var hreint en mjög plain og þarfnast endurnýjunar. Engin kaffivél eða hraðsuðuketill, á baðinu var ekki þvottapoki, sturtuhetta eða nokkuð annað aukalegt til þægindarauka fyrir gesti. Afar heitt og loftlaust var í herberginu vegna sólskins sem skein inn um gluggann, frekar ólíft að vera þar inni þrátt fyrir opinn glugga. Báðum um viftu fyrir nóttina. Starfsmaður í lobby lofaði að koma með hana á herbergið, en ekki gert. Fékkst þó með því að fara aðra fer til að sækja hana. Morgunmaturinn (innifalinn í verði) var óspennandi. A la cart kvöldverðurinn var virkilega góður og þjónustan á veitingastaðnum frábær.